8 dagar í Íslandsför
Föstudagur, 20. mars 2009
Við fjölskyldan eru að fara í heimsókn til íslands núna 28.mars næst komandi það er að segja eftir 8 daga. Mikið hlakkar okkur öllum til. Það verður nóg um að snúast þegar við komum, við byrjum á því að hitta fjölskyldurnar okkar auðvitað og svo er það skírn hjá systir hans Kobba þann 29. mars. Þann 4 og 5. apríl förum við í fermingarveislur, Íris systir og Guðmann eru að fara ferma þann 5. apríl þannig að það verður nóg um að snúast og hjálpa þeim. Sauma klúbburinn minn er að plana hitting og svo þarf að sjálfsögðu að taka smá djamm með Ólöfu og Magneu hehe.....eða er það ekki stelpur??
Við fjölskyldan erum búin að hafa það alveg ágæt síðustu vikurnar, að sjálfsögðu kemur oft mikill söknuður hjá öllum. Við erum svo skrítin, held að við komum til með að flytja aftur til Íslands við fyrsta tækifæri allavega eins og staðan er núna í dag annars er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér og ég hugsa að það gæti breyst mikið ef ég fengi einhverja almennilega vinnu. Við erum búin að kynnast fullt af frábæru fólki hér, sumt af þeim þekktum við ekki áður en önnur þektum við og eða könnuðumst við, allt frábært fólk
stelpurnar eru báðar komnar í nýja skóla og gengur það alveg ljómandi vel og þær orðnar miklu glaðari. Ég held að ég geti sagt að við höfum gert stór og mikil mistök með að halda þeim svona lengi í hinum skólanum sem þær voru
en sem betur fer er það nú liðin tíð og nýr tími að byrja 
Það er farið að vora hér hjá okkur það er alveg á hreinu, fuglasöngurinn hér er á hverju strái og maður finnur hvað loftslagið er að byrja hlýna. Það er farið að vera hægt að sitja úti í garði og drekka kaffi eða eitthvað annað!!! ég til dæmis sat úti í sólinni í gærmorgun og las tvær bækur sem ég þarf að lesa fyrir fyrsta dönskuprófið mitt í Lære dansk skólanum
og þá er bara ein bók eftir.
Hermann er að fara byrja á leikskóla 14. apríl daginn eftir að við komum heim svo við fórum því í fyrstu heimsóknina okkar á miðvikudaginn til að skoða leikskólann og leist okkur rosalega vel á hann. Leikskólastjórinn sem sýndi okkur skólann og stafsfólkið talaði bara dönsku við okkur allan tíman og það kom mér nett á óvart hvað ég skildi hana mikið þótt ég hafi ekki getað svarað eins mikið til baka og ég hefði viljað en þó samt eitthvað smá 
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Arna systir 32 ára í dag
Þriðjudagur, 10. febrúar 2009
Mig langar til að byrja á því að óska henni Örnu Björk systir til hamingju með daginn.
Það er nú ekki mikið að frétta af okkur hér í Odense núna þessa dagana annað en flensa og aftur flensa já við Kobbi og María Bára erum búin að liggja núna í flensu síðan í síðustu viku. Við héldum þó upp á 3 ára afmælið hans Hermanns á sunnudaginn var og gekk það bara rosa vel miðað við að mamman var með hor í nös við baksturinn smekklegt það heheh... Hann á nú ekki afmæli fyrr en 14. febrúar en þar sem foreldrarnir verða uppteknir þá var þessi dagur valinn. Það var alveg æðislegt að fylgjast með litla prinsinum við undirbúninginn því hann var svo svakalega spenntur, þetta er í fyrsta skiptið sem hann er svona meðvitaður um afmælis veisluna sína að það var alveg frábært. Mamman var tilneid til þess að baka spaidermanköku sem gekk svona lala en pabbinn sá um kjúklingapottréttinn sem tókst svona svakalega vel enda mikill snillingur þar á ferð í matseldinni
það kom helling af fólki og ekki vantaði nú barnafjöldann, held að þau hafi farið hátt upp í 20 stiki. Það er hægt að skoða myndir úr afmælinu á síðunni hans Hermanns á barnalandi.
jæja þangað til næst þá bið ég bara að heilsa í bili.
Tannlæknirinn
Þriðjudagur, 3. febrúar 2009
Hermann Borgar fór til tannlæknis í fyrsta skipti í dag og gekk það alveg ótrúlega vel. Ólína Erna systir hans fór fyrst í stólinn og hann gat séð hana á meðan tannlæknirinn skoðaði hana og svo þegar komið var að honum þá gekk minn bara beint að stólnum klifraði upp í hann og opnaði á sér munninn eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Tannlæknirinn spurði hvort hann notaði snuð heheh því það er farið að sjást ansi vel á tönnunum hans þannig að mamman þarf að fara vera svolítið dugleg við að fela þessar túttur en þrátt fyrir það þá voru allar tennurnar heilar hjá honum sem betur fer. Prinsinn verður þriggja ára eftir tvær vikur þannig að farið er að plana hvenær veislan verður því að það vill svo til að mamman og pabbinn eru að fara á þorrablót á afmælisdaginn hans, æðislegir foreldrar en þetta er eitthvað sem ekki er hægt að missa af heh.. eða hvað??
Well now love you.
Íris systir 25 ára í dag
Sunnudagur, 1. febrúar 2009
Já ég ætla að byrja á því að óska elskulegu systir minni til hamingju með daginn, hún er 25 ára gömul í dag vá og hún sem er litla systir eða í raun sú minnsta ummm eða kannski frekar sú yngsta en það sýnir nú bara hvað ég sjálf er orðin gömul og grá annars sér maður það nú bara best þegar maður horfir á börnin sín sem eru farin að vaxa aðeins of mikið. María Bára orðin stæri en ég og ekki langt í að hún Ólína Erna nái mömmu sinni svo er það Hermann Borgar sem má nú alveg fara stoppa og halda áfram að vera litla barnið en það er hægara sagt en gert því hann er að verða 3 ára núna eftir 2 vikur úff..og það verður mikil krafa á að maður baki eitt stykki spaiderman köku það verður nú eitthvað að ná því góðu.
Á föstudaginn fórum við fjölskyldan í mat hjá vinafólki okkar þeim Nonna og Hrund, þar fengum við íslenskan fisk umm... mikið var það gott og borðuðum við á okkur gat og drukkum smá hvítvín með ekki slæmt það. Kvöldið endaði svo á að kallarnir skruppu á bjórkvöld sem haldið var á vegum íslendingafélagsins og við konurnar fórum snemma í háttinn enda var svo farið í bodypump laugardags morguninn og já vaknað með miklar harðsperrur í dag.
Í dag er Sunnudagur og allir mjög latir á heimilinu og mamman varla göngufær, úti er snjókoma og frekar kalt þannig að manni langar nú bara einna helst liggja upp í sófa og horfa á góða myndi. Mikið er ég farin að hlakka til þegar það fer að hlýna úti því maður er engan vegin að nenna að fara út þessa dagana til að gera nokkurn skapaðan hlut svo ég er að vonast til að það lagist eitthvað þegar veðrið verður betra. Kannski að maður verði duglegri að fara út að ganga eða hjóla og því um líkt.
Stelpurnar bíða spenntar eftir að byrja í nýjum skóla og satt að segja mér líka. Ólína er farin að mæta í klúbb hér rétt hjá sem er fyrir börn á aldrinum 10 - 14 ára og er hún að fíla það mjög vel. Í klúbbnum er gert margt skemmtilegt eins og til dæmis spilað, farið í leiki, labbað upp í íþróttahúsið sem er þar rétt hjá og farið í ýmsa leiki þar og margt fl. María er hins vegar enn í Körfunni hér þannig að hún ætti nú að kannast við eitthvað af stelpunum sem verða með henni í skóla svo er hún komin með eitthvað af þeim á facebook hjá sér þannig að þetta er allt saman að koma. Hermann Borgar er kominn inn á leikskóla hér í grenndinni en byrjar samt ekki fyrr en 1.apríl mikið verður það gott fyrir hann en hann á nú samt eftir að sakna hennar Helle sinnar (dagmömmunnar) og hún hans. Hún sagði mér í vikunni að henni myndi finnast voða erft að kveðja hann þegar hann hætti því hann væri svo æðislegur þessi drengur
Eins og ég var nú búin að segja áður er ég byrjuð að mæta í ræktina en uhumm maður er nú ekki alveg búin að vera eins duglegur og maður ætlaði sér en það kemur. Kobbi er búin að vera á leiðinni að byrja núna í smá tíma en ekki enn kominn á stað en það kemur líka og nú er hann búinn að hóta því að safna skeggi þar til hann verður búinn að ná af sér 10 kg. það verður spennandi að sjá það hehe
áfram svo kobbi held að öllum langi til að sjá þig með mikið skegg því ég mun svo sannarlega setja inn myndir af því hehe..
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Helgin og fl.
Mánudagur, 19. janúar 2009
Við fjölskyldan fórum í smá ferðalag um helgina, við skelltum okkur til Sönderborgar í heimsókn. Við fengum að gista hjá hjónum sem heita Ómar og Árdís, Ómar var með Kobba í skóla á síðasta ári og þar hitum við fleira fólk sem einnig hafði verið með honum í skólanum eins og þau Einar, Gímsa, Sverrir, Eyþór og konuna hans hana Jónu. Sönderborg er virkilega fallegur staður ég hefði alveg getað hugsað mér að búa þar. Um er að ræða lítinn stað þar sem búa um 30000 þús manns. Við kobbi lentum auðvitað aðeins á djamminu þarna, kíktum niður í bæ sem var voða gaman. Svo þegar heim var komið var mikið talað um pólitík og Kobbinn ákveðinn í því að bjóða sig fram til kostningar fyrir sjálfstæðisflokkin
og ég harð ákveðin í því að ég myndi aldrei nokkurn tíman kjósa hann áfram þar sem ég hef þá trú á manninum mínum að verða eins mikill glæpon og allir þessir karlar sem fara í stjórnmál hehehe...Gimsi ákvað svo að bjóða sig fram fyrir framsóknarflokkinn en jæja við verðum svo bara að sjá hvað verður og hvor þeirra kemst lengra en bara gaman að því.
Ómar og Árdís takk fyrir að bjóða okkur gistingu og fl. þetta var voða gaman. Og þið hin takk fyrir að hitta okkur.
Kobbi og Ólína eru búin að vera eitthvað voða slöpp og fóru ekki í skólann í dag og svona. Ólína endalaust á klóinu og Kobbi ummm kannski bara enn þunnur
eða hvað....
Spinning: ég og Hrund skelltum okkur í ræktina áðan og ákváðum að fara í spinning. Þetta var smá öðruvísi en maður er vanaur heima, hjólin voru voða flott þar sem maður þurfti að fara í spés skó sem maður festir svo á litla petala þetta var voða þægilegt og gott að hjóla á svona hjóli en tíminn ummm... hann var kannski heldur of rólegur eða allavegna var þetta sko enginn tími eins og maður er vanur heima það er alveg á hreinu og eigum við að ræða tónlistina eitthvað heheh þetta var bara fyndið en samt í góða svona í fyrsta tíma. Við fórum svo niður og gerðum nokkrar æfingar þannig að maður má nú alveg búast við smá stirðleika á morgun.

